Könnun

Í hvaða sæti lenda AC Mullet í sumar?

Auglýsing

Tenglar

AC Mullet hættir keppni

25. júlí 2006 klukkan 00:23
Því miður höfum við hjá AC Mullet ákveðið að hætta keppni vegna þess að hópurinn okkar er bara orðinn of lítill til þess að geta haldið áfram. Takk fyrir okkur.

Kv ACM
AC Mullet
1 athugasemd

AC Mullet vs. Marhall

12. júní 2006 klukkan 23:58

Spiluðum við Marshall í gær á Leiknisvelli við fínar aðstæður. Við byrjuðum leikinn ekki fyrr en við vorum búnir að fá á okkur tvo mörk. Þá fórum við að spila ágætan fótbolta og vorum alls ekki verra liðið á vellinum. Vorum samt ekki að skapa okkur nein almennileg færi. 2-0 í hálfleik. Byrjuðum seinni hálfleikinn ágætlega en fengum á okkur tvö ódýr mörk áður en okkur tókst að minnka muninn í 4-1 sem urðu lokatölur.

Öll mörkin sem við fengum á okkur voru reyndar frekar ódýr og eitt var rangstöðu mark, þetta er vegna þess að ég (Sverrir Einarsson) þurfti að standa milli stanganna þar sem Sverrir Gauti er hættur og Óli Dan er meiddur, reyndari markmarður hefði örugglega gert betur í öllum mörkunum.

Á 75. min kom upp mjög leiðinlegt atvik þar sem urðu slagsmál og fengu þrír að líta rauðaspjaldið. Þetta á auðvita ekki að sjást á fótboltavellinum og verður tekið á þessu hjá okkur og vonandi hjá Marshall mönnum. Fyrir utan þetta var þetta mjög prúðmannlega leikinn leikur.

Stjórnin

AC Mullet
2 athugasemdir

Geirfuglar vs. AC Mullet

31. maí 2006 klukkan 17:56

Fyrri hálfleikurinn er örugglega einn sá besti sem ég hef séð AC Mullet spila.  Spiluðum boltanum ótrúlega vel á milli manna og sköpuðum alveg heilan helling.  Svo skoruðum við gull fallegt mark. Stebbi Örn með skot utan af velli, small í stönginni, Nóri fylgdi vel á eftir, gaf hann fyrir og Andri Gísla kláraði dæmið.  1-0 í hálfleik.
 

Svo vorum við jafn lélegir fyrstu 20 min af seinni hálfleik og við vorum góðir í fyrri hálfleik.  Fengum á okkur 4 mörk.  Veit ekki nákvæmlega hvað gerðist en þetta var skelfilegt.  Eftir þetta var erfitt að komast aftur inn í leikinn, en við reyndum eins og við gátum og það varð aðeins meira jafnræði með liðunum.  Þokkalega ánægður með það að við gáfumst aldrei upp.  Og það borgaði sig að lokum þegar Andri Gísla setti annað markið okkar.  Stuttu seinna fengum við svo víti og Andri ætlaði að fullkomna þrennuna en það fór forgörðum.  Lokatölur 4-2 fyrir Geirfuglana.
 

Stjórnin

AC Mullet
6 athugasemdir

AC Mullet vs. G&T

28. maí 2006 klukkan 16:34
" AC Mullet - G & T 0-4 (0-0).  Mjög jafn og spennandi leikur, þar sem bæði liðin áttu stangarskot. Í stöðunni 0-1, fékk Mullet liðið víti, en framherinn þeirra sem hafði meiðst ákvað að taka spyrnuna og skaut yfir. Síðan fengu Mullet leikmennirnir frábært færi, en skotið fór rétt framhjá.  Vonandi að framherji Mullet nái sér fljótt tengt meiðslum sem upp komu, en hringja varð á sjúkrabíl handa honum. Úrslitin gefa ekki rétta mynd af leiknum."  Jakob Þór dómari.

Á síðustu tíu mín. fengum við svo á okkur 3. mörk sem er auðvita ekki ásættanlegt.  Þetta er bara það sama og alltaf.  Við verðum óþolinmóðir og förum að sækja á allt of mörgum mönnum og þá fáum við þetta í bakið á okkur.

Mig langar samt að minnast á aukaspyrnuna sem Sverrir Einarsson skoraði næstum því úr.  Og hann hefði legið inni aftur seinna í leiknum þegar hann átti hörku skot utan af velli, bara ef þessi markvörður G&T væri ekki svona ógeðslega stór.

Stjórnin.
AC Mullet
7 athugasemdir

AC Mullet vs. Hómer

25. maí 2006 klukkan 01:08

Fyrsti deildarleikur sumarsins hefur nú verið leikinn. Kepptum við Hómer. Leikurinn endaði 2-4 fyrir Hómer (samhvæmt dómaranum góða). Við vorum bara því miður aðeins of lengi í gang, fengum snemma á okkur tvö mörk, svo jafnaðist þetta aðeins og við vorum að spila fínan bolta. Fórum inn í hálfleikinn 1-3 undir. Markið okkar kom eftir fallega sókn þar sem við spiluðum vörn andstæðingsins sundur og saman og það endaði með því að Gummi Helgi eða Andri Páll skoraði. Seinni hálfleikur var svo í járnum. Við áttum fullt af góðum færum, en markmaðurinn þeirra var að verja vel og halda boltanum. Sverrir Gauti átti líka góðan leik í markinu okkar og varð oft vel, nokkrum sinnum maður á mann. Alveg undir lokin vorum við svo kannski orðnir svoldið óþolimóðir og komnir aðeins of framarlega og fengum á okkur skyndisókn, langur bolti fram og einn snöggur á eftir honum og skoraði.

Ég ætla nú ekki að fara að kenna dómaranum um tapið okkar, við vorum bara eins og ég sagði áðan aðeins og lengi í gang. En það voru þarna nokkur atvik þar sem var eins og dómarinn væri bara ekki á sömu plánetu og við. Snemma í leiknum átti nú einn leikmaður Hómers að fjúka út af fyrir það að stanga Andra Gísla í magann, og dómarinn stóð við hliðina á þeim þegar hann gerði þetta. Hómer voru líka mjög grófir og voru mikið í hættulegum tæklingum aftan frá, en dómarinn dæmdi sjaldan sem aldrei á það. Svo allar rangstæðurnar, sem þeir sem betur fer gátu ekki nýtt, nema eina, vegna Sverris í markinu.

Stjórnin

AC Mullet
1 athugasemd

Leit hefst

20. maí 2006 klukkan 17:56
Nú leitum við að treyju nr. 13.  Hún hvarf eftir einhvern æfingaleik.  Mig grunar að einhver hafi tekið einhvern félaga sinn með sér og hann fékk hana, en gleymdi svo að skila henni.  Síðast þegar sást til hana að menn halda var það í Gym 80.  Hún var klædd af grönnum, ljóshærðum strák.  Hárið var var svoldið sítt og sleikt til hliðar.  Ef einhver kannast við þennan mann er hann vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram við stjórn AC Mullet.
AC Mullet
2 athugasemdir

AC Mullet vs. Gismo, taka tvö

18. maí 2006 klukkan 17:40
Við spiluðum aftur við gismo í gær og það endaði á annan veg en við höfðum vonast eftir. Við vorum að spila ágætlega fram á við á köflum, en oft var boltinn ekki að fljóta nógu vel. Í vörninni var svoldið skipulagsleysi. Nú verður farið í það að skipuleggja hana frá A-Ö og gera öllum þeim sem munu spila hana í sumar grein fyrir því hvað þeir eiga að gera. Sömuleiðis allar aðrar stöður á vellinum.

Siggi (nýi þjálfarinn) mætti í gær og horfði á. Leyfði öllum að spila, svona til að sjá hópinn og hvað menn geta. Þær breytingar sem verða í sumar eru:

1. Fyrir hvern leik verður bara valinn 16 manna hópur. Þá verður auðvita horft á það hverjir eru að mæta á æfingar og standa sig best á þeim.
2. Við mætum 45 min fyrir hvern leik og hittumst í búningsherberginu, þar sem farið verður yfir það sem við ætlum að leggja upp með í hverjum leik fyrir sig.
3. Við ætlum að reyna á mæta 2 tímum fyrir leik í bikarnum og fara saman að borða og peppa okkur upp fyrir leik.
4. Við borgum núna mánaðalega í sjóð (3000 kr). Sjóðurinn fer í mat, æfingar, lokahófið (verðlaunagripi) og allt annað sem vantar upp á. Reiknisnúmerið er hægt að finna á linknum hérna fyrir ofan.

Stjórnin
AC Mullet
3 athugasemdir

Nýr þjálfari hefur störf

17. maí 2006 klukkan 00:55

Nýr þjálfari mun koma og sjá hópinn núna á miðvikudaginn á æfingu. Þannig að ég ætla að biðja alla um að mæta 2230 (smá fundur). Svo verður léttur leikur við Gismo, og nú er bara að sanna sig. Ég ætla líka að biðja alla nýliða að koma með peninga fyrir búningum og fullt nafn ,kennitölu og símanúmer á blaði.

Stjórnin

AC Mullet
4 athugasemdir

Deildin byrjar

15. maí 2006 klukkan 02:45

Jæja þá styttist heldur betur í það að deildin byrji. Fyrsti leikurinn okkar er sunnudaginn 21.maí við Hómer kl 2100 á Fylkisvellinum. Svo er leikur í bikarnum fimmtudaginn 25.maí kl 1800 á Tungubakka. Enn eru þó nokkrir sem eiga eftir að borga æfingagjöld og enn fleiri eiga eftir að borga búninginn. Þeir sem ekki verða búnir að borga bæði í síðastalagi á æfingunni á miðvikudaginn verða ekki með í leiknum. Svo vantar mig líka að fá kennitöluna hjá öllum nýliðunum svo ég geti skráð þá í liðið, það má ekki klikka.

Stjórnin

AC Mullet
9 athugasemdir

AC Mullet vs. Gismo

12. maí 2006 klukkan 02:42
Spiluðum léttan leik við Gismo á æfingunni í gær.  Byrjuðum mjög vel og yfirspiluðum Gismo á köflum.  Komumst yfir mjög fljótt með flottu marki frá Jökli.  Héldum áfram að spila vel og hefðum geta verið komnir í 4 - 0 en heppnin er sjaldnast með okkur.  Svo fengum við á okkur mark.  Stutt seinna misstum við alla varnarmennina okkar út af vegna meiðsla og fengum þá á okkur tvö ódýr mörk og svo aftur eitt undir lokin.  Loka staða 1 - 4 fyrir Gismo.  Margt mjög gott í leiknum, en við vorum óheppnir að missa menn út vegna meiðsla og svo er það alltaf það sama og það er það að við erum ekki nógu þéttir inni á vellinum, hvorki á miðju og sérstaklega ekki í vörninni.  Þetta verður að laga.  Ég hef nefnt þetta marg oft en aldrei er gert það sem ég bið um.  Vonandi hlustið þið frekar á nýja þjálfarann sem við erum að semja við og verðum vonandi búnir að ráða fyrir næstu æfingu.

Stjórnin
AC Mullet
9 athugasemdir